- Project Runeberg -  Grænlendinga saga /

Tema: Icelandic Literature, Vikings
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

6.

Það sama sumar kom skip af Noregi til Grænlands. Sá maður hét Þorfinnur karlsefni er því skipi stýrði. Hann var son Þórðar hesthöfða Snorrasonar, Þórðarsonar frá Höfða.

Þorfinnur karlsefni var stórauðigur að fé og var um veturinn í Brattahlíð með Leifi Eiríkssyni. Brátt felldi hann hug til Guðríðar og bað hennar en hún veik til Leifs svörum fyrir sig. Síðan var hún honum föstnuð og gert brúðhlaup þeirra á þeim vetri.

Hin sama var umræða á Vínlandsför sem fyrr og fýstu menn Karlsefni mjög þeirrar ferðar, bæði Guðríður og aðrir menn. Nú var ráðin ferð hans og réð hann sér skipverja, sex tigi karla og konur fimm.

Þann máldaga gerðu þeir Karlsefni og hásetar hans að jöfnum höndum skyldu þeir hafa allt það er þeir fengju til gæða. Þeir höfðu með sér alls konar fénað því að þeir ætluðu að byggja landið ef þeir mættu það. Karlsefni bað Leif húsa á Vínlandi en hann kveðst ljá mundu húsin en gefa eigi.

Síðan héldu þeir í haf skipinu og komu til Leifsbúða með heilu og höldnu og báru þar upp húðföt sín. Þeim bar brátt í hendur mikil föng og góð því að reyður var þar upp rekin, bæði mikil og góð, fóru til síðan og skáru hvalinn. Skorti þá eigi mat. Fénaður gekk þar á land upp en það var brátt að graðfé varð úrigt og gerði mikið um sig. Þeir höfðu haft með sér griðung einn.

Karlsefni lét fella viðu og telgja til skips síns og lagði viðinn á bjarg eitt til þurrkanar. Þeir höfðu öll gæði af landkostum þeim er þar voru, bæði af vínberjum og alls konar veiðum og gæðum.

Eftir þann vetur hinn fyrsta kom sumar. Þá urðu þeir varir við Skrælingja og fór þar úr skógi fram mikill flokkur manna. Þar var nær nautfé þeirra en graðungur tók að belja og gjalla ákaflega hátt. En það hræddust Skrælingjar og lögðu undan með byrðar sínar en það var grávara og safali og alls konar skinnavara og snúa til bæjar Karlsefnis og vildu þar inn í húsin en Karlsefni lét verja dyrnar. Hvorigir skildu annars mál.

Þá tóku Skrælingjar ofan bagga sína og leystu og buðu þeim og vildu vopn helst fyrir en Karlsefni bannaði þeim að selja vopnin.

Og nú leitar hann ráðs með þeim hætti að hann bað konur bera út búnyt að þeim og þegar er þeir sáu búnyt þá vildu þeir kaupa það en ekki annað. Nú var sú kaupför Skrælingja að þeir báru sinn varning í brott í mögum sínum en Karlsefni og förunautar hans höfðu eftir bagga þeirra og skinnavöru. Fóru þeir við svo búið í burt.

Nú er frá því að segja að Karlsefni lætur gera skíðgarð rammlegan um bæ sinn og bjuggust þar um. Í þann tíma fæddi Guðríður sveinbarn, kona Karlsefnis, og hét sá sveinn Snorri.

Á öndverðum öðrum vetri þá komu Skrælingjar til móts við þá og voru miklu fleiri en fyrr og höfðu slíkan varnað sem fyrr.

Þá mælti Karlsefni við konur: "Nú skuluð þér bera út slíkan mat sem fyrr var rífastur en ekki annað."

Og er þeir sáu það þá köstuðu þeir böggunum sínum inn yfir skíðgarðinn. En Guðríður sat í dyrum inni með vöggu Snorra sonar síns. Þá bar skugga í dyrin og gekk þar inn kona í svörtum námkyrtli, heldur lág, og hafði dregil um höfuð, og ljósjörp á hár, fölleit og mjög eygð svo að eigi hafði jafnmikil augu séð í einum mannshausi.

Hún gekk þar er Guðríður sat og mælti: "Hvað heitir þú?" segir hún.

"Ég heiti Guðríður eða hvert er þitt heiti?"

"Ég heiti Guðríður," segir hún.

Þá rétti Guðríður húsfreyja hönd sína til hennar að hún sæti hjá henni en það bar allt saman að þá heyrði Guðríður brest mikinn og var þá konan horfin og í því var og veginn einn Skrælingi af einum húskarli Karlsefnis því að hann hafði viljað taka vopn þeirra og fóru nú í brott sem tíðast en klæði þeirra lágu þar eftir og varningur. Engi maður hafði konu þessa séð utan Guðríður ein.

"Nú munum vér þurfa til ráða að taka," segir Karlsefni, "því að eg hygg að þeir muni vitja vor hið þriðja sinni með ófriði og fjölmenni. Nú skulum vér taka það ráð að tíu menn fari fram á nes þetta og sýni sig þar en annað lið vort skal fara í skóg og höggva þar rjóður fyrir nautfé vort þá er liðið kemur framúr skóginum. Vér skulum og taka griðung vorn og láta hann fara fyrir oss."

En þar var svo háttað er fundur þeirra var ætlaður að vatn var öðru megin en skógur á annan veg. Nú voru þessi ráð höfð er Karlsefni lagði til.

Nú komu Skrælingjar í þann stað er Karlsefni hafði ætlað til bardaga. Nú var þar bardagi og féll fjöldi af liði Skrælingja. Einn maður var mikill og vænn í liði Skrælingja og þótti Karlsefni sem hann mundi vera höfðingi þeirra. Nú hafði einn þeirra Skrælingja tekið upp öxi eina og leit á um stund og reiddi að félaga sínum og hjó til hans. Sá féll þegar dauður. Þá tók sá hinn mikli maður við öxinni og leit á um stund og varp henni síðan á sjóinn sem lengst mátti hann. En síðan flýja þeir á skóginn svo hver sem fara mátti og lýkur þar nú þeirra viðskiptum.

Voru þeir Karlsefni þar þann vetur allan. En að vori þá lýsir Karlsefni að hann vill eigi þar vera lengur og vill fara til Grænlands. Nú búa þeir ferð sína og höfðu þaðan mörg gæði í vínviði og berjum og skinnavöru. Nú sigla þeir í haf og komu til Eiríksfjarðar skipi sínu heilu og voru þar um veturinn.


Project Runeberg, Mon Oct 21 01:33:27 1996 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/grenlend/06.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free