- Project Runeberg -  Grænlendinga saga /

Tema: Icelandic Literature, Vikings
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

3.

Á einhverju kveldi bar það til tíðinda að manns var vant af liði þeirra og var það Tyrkir suðurmaður. Leifur kunni því stórilla því að Tyrkir hafði lengi verið með þeim feðgum og elskað mjög Leif í barnæsku. Taldi Leifur nú mjög á hendur förunautum sínum og bjóst til ferðar að leita hans og tólf menn með honum.

En er þeir voru skammt komnir frá skála þá gekk Tyrkir í mót þeim og var honum vel fagnað.

Leifur fann það brátt að fóstra hans var skapgott. Hann var brattleitur og lauseygur, smáskitlegur í andliti, lítill vexti og vesallegur en íþróttamaður á alls konar hagleik.

Þá mælti Leifur til hans: "Hví varstu svo seinn fóstri minn og fráskili föruneytinu?"

Hann talaði þá fyrst lengi á þýsku og skaut marga vega augunum og gretti sig. En þeir skildu eigi hvað er hann sagði.

Hann mælti þá á norrænu er stund leið: "Eg var genginn eigi miklu lengra en þið. Kann eg nokkur nýnæmi að að segja. Eg fann vínvið og vínber."

"Mun það satt fóstri minn?" kvað Leifur.

"Að vísu er það satt," kvað hann, "því að eg var þar fæddur er hvorki skorti vínvið né vínber."

Nú sváfu þeir af þá nótt en um morguninn mælti Leifur við háseta sína: "Nú skal hafa tvennar sýslur fram og skal sinn dag hvort, lesa vínber eða höggva vínvið og fella mörkina svo að það verði farmur til skips míns."

Og þetta var ráðs tekið.

Svo er sagt að eftirbátur þeirra var fylltur af vínberjum.

Nú var hogginn farmur á skipið.

Og er vorar þá bjuggust þeir og sigldu burt og gaf Leifur nafn landinu eftir landkostum og kallaði Vínland, sigla nú síðan í haf og gaf þeim vel byri þar til er þeir sáu Grænland og fjöll undir jöklum.

Þá tók einn maður til máls og mælti við Leif: "Hví stýrir þú svo mjög undir veður skipinu?"

Leifur svaraði: "Eg hygg að stjórn minni en þó enn að fleira. Eða hvað sjáið þér til tíðinda?"

Þeir kváðust ekki sjá það er tíðindum sætti.

"Eg veit eigi, "segir Leifur, "hvort eg sé skip eða sker."

Nú sjá þeir og kváðu sker vera. Hann sá því framar en þeir að hann sá menn í skerinu.

"Nú vil eg að vér beitum undir veðrið, "segir Leifur, "svo að vér náum til þeirra ef menn eru þurftugir að ná vorum fundi og er nauðsyn á að duga þeim. En með því að þeir séu eigi friðmenn þá eigum vér allan kost undir oss en þeir ekki undir sér."

Nú sækja þeir undir skerið og lægðu segl sitt, köstuðu akkeri og skutu litlum báti öðrum er þeir höfðu haft með sér. Þá spurði Leifur hver þar réði fyrir liði.

Sá kveðst Þórir heita og vera norænn maður að kyni "eða hvert er þitt nafn?"

Leifur segir til sín.

"Ertu son Eiríks rauða úr Brattahlíð?" segir hann.

Leifur kvað svo vera: "Nú vil eg, "segir Leifur, "bjóða yður öllum á mitt skip og fémunum þeim er skipið má við taka."

Þeir þágu þann kost og sigldu síðan til Eiríksfjarðar með þeim farmi þar til er þeir komu til Brattahlíðar, báru farminn af skipi. Síðan bauð Leifur Þóri til vistar með sér og Guðríði konu hans og þrem mönnum öðrum en fékk vistir öðrum hásetum, bæði Þóris og sínum félögum. Leifur tók fimmtán menn úr skerinu. Hann var síðan kallaður Leifur hinn heppni. Leifi varð nú bæði gott til fjár og mannvirðingar.

Þann vetur kom sótt mikil í lið Þóris og andaðist hann Þórir og mikill hluti liðs hans. Þann vetur andaðist og Eiríkur rauði.

Nú var umræða mikil um Vínlandsför Leifs og þótti Þorvaldi bróður hans of óvíða kannað hafa verið landið.

Þá mælti Leifur við Þorvald: "Þú skalt fara með skip mitt bróðir ef þú vilt til Vínlands og vil eg þó að skipið fari áður eftir viði þeim er Þórir átti í skerinu."

Og svo var gert.


Project Runeberg, Mon Oct 21 01:31:19 1996 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/grenlend/03.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free