- Project Runeberg -  Grænlendinga þáttur /

Tema: Vikings, Icelandic Literature
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

6.

Hallur hét maður. Hann bjó að Sólarfjöllum, vitur maður og góður bóndi. Hann var í liði með Sokka og kom síðast með sínu liði.

Hann mælti til Sokka: "Ekki vænleg líst mér þín ætlan að leggja smáskipum að stórskipum við slíkan viðbúnað sem eg hygg að þeir munu hafa. En eg veit eigi hversu traust lið er þú hefir en allir vaskir menn munu vel gefast en hinir munu hlífast meir, og verða höfuðsmenn fyrir það uppgefnir og horfir þá enn þunglegar vor málahlutur en áður. Nú sýnist mér ráð ef menn skulu að leggja að eiðar fari fram að hver maður skuli annaðhvort hér falla eða hafa sigur."

En við þessu orð Halls dignuðu menn mjög.

Sokki mælti: "Eigi munum vér þó skilja við þetta, að ósett sé málunum."

Hallur kvaðst mundu leita um sættir milli þeirra og kallaði á kaupmenn og mælti: "Hvort skal mér fritt að ganga á fund yðvarn?"

Þeir Kolbeinn og Ketill svara að honum skyldi fritt. Síðan hitti hann þá og lét nauðsyn að málum væri sett eftir slík stórvirki. Þeir kváðust nú búnir við hvoru sem aðrir vildu, kváðu af þeim landsmönnum allan þennan ójafnað staðið hafa "en nú er þú sýnir svo mikla góðgirnd þá unum vér því að þú gerir í milli vor."

Hann kvaðst eftir því gera mundu og dæma er honum sýndist réttlegast hversu sem hvorum líkaði. Síðan var þetta fyrir Sokka borið. Hann kveðst og mundu una umdæmi Halls. Kaupmenn skyldu um nætur að búnaði sínum vera og kváðu Sokka ekki annað líka en þeir yrðu í burtu sem fyrst "en ef þeir seinka búnað sinn og gera mér skapraun í því þá er vís von að þeir skulu bótalausir ef þeir verða teknir."

Nú skildu þeir að því og var á sáttarfund kveðið.

Ketill mælti:" Ekki horfir skjótlega búnaður vor en vistföng þverra heldur og er það mitt ráð að leita eftir vistunum og veit eg hvar sá maður býr er mikinn mat á og kalla eg ráð að sækja eftir."

Þeir kváðust þess albúnir.

Síðan hlupu þeir upp eina nátt frá skipum, þrír tigir manna saman, allir vopnaðir, og komu að bænum og var þar autt allt. Þórarinn hét bóndi sá er þar bjó.

Ketill mælti: "Eigi hefir mitt ráð vel gefist" og fara síðan í burt frá bænum og ofan á leið til skipa og var þar hrísótt er þeir fóru.

Þá mælti Ketill: "Syfjar mig," sagði hann, "og verð eg að sofa."

Þeir kváðu það ekki mjög ráðlegt en þó lagðist hann niður og sofnaði en þeir sátu yfir.

Litlu síðar vaknaði hann og mælti: "Mart hefir fyrir mig borið. Hvað mun varða þótt vér kippum upp hríslu þessi er hér er undir höfði mér?"

Þeir kipptu upp hríslunni og var þar undir jarðhús mikið.

Ketill mælti: "Vitum fyrst hvað hér er fanga."

Þeir fundu þar sex tigi sláturgripa og tólf vættir smjörs, skreið mikla. "Vel er það," sagði Ketill, "að eg hefi eigi villt upp borið fyrir yður."

Nú fara þeir til skips með feng sinn.

Nú líður að sáttarfundinum og komu hvorirtveggju til þess fundar, kaupmenn og landsmenn.

Þá mælti Hallur: "Sú er sáttargerð mín yðvar í milli að eg vil að á standist víg Össurar og Einars en fyrir manna minna mun koma sektir Austmanna, að þeir skulu hér ekki eiga vist né væri. Þau víg skulu og jöfn vera, Steingríms bónda og Símonar, Kráks austmanns og Þorfinns Grænlendings, Víghvats austmanns og Bjarnar Grænlendings, Þóris og Þórðar. Nú er einn óbættur vor maður er Þóarinn heitir, ómegðarmaður. Hann skal fé bæta."

Sokki hvað sér þungt gerðir líka og svo öðrum Grænlendingum er þannig fór um mannjafnað. Hallur kvaðst ætla að þar muni þó staðar nema hans ummæli og við það skildu þeir.

Síðan rak ís að og þakti alla fjörðu og hugðu Grænlendingar þá gott til ef þeir mættu taka þá og þeir færu eigi svo burt sem mælt var. En við það sjálft að mánaðarmótið kom þá rak í burt allan ísinn og gaf kaupmönnum burt af Grænlandi og skildu við það.

Þeir komu við Noreg. Kolbeinn hafði haft einn hvítabjörn af Grænlandi og fór með dýrið á fund Haralds konungs gilla og gaf honum og tjáði fyrir konungi hversu þungs hlutar Grænlendingar voru af verðir og færði þá mjög í róg. En konungur spurði annað síðar og þótti honum Kolbeinn hafa fals fyrir sig borðið og komu engi laun fyrir dýrið. Síðan hljóp Kolbeinn í flokk með Sigurði slembidjákn og gekk inn að Haraldi konungi gilla og veitti honum áverka. Og síðan er þeir fóru fyrir Danmörk og sigldu mjög en Kolbeinn var á eftirbáti en veður hvasst þá sleit frá bátinn og drukknaði Kolbeinn.

En þeir Hermundur komu til Íslands til ættjarða sinna.

Og lýkur þar þessi sögu.


Project Runeberg, Wed Aug 23 19:42:43 1995 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/grthattr/6.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free